25janúar

Ok ok ok

Jæja ok ég veit að ekkert hefur komið lengi en það er bara þannig, erfitt að koma sér af stað. En svo er mál með vexti að blessuð jólin fóru nú ekki svo rosalega illa með mig, ég bætti á mig 1,6 kg yfir hátíðirnar og átti soldið erfitt með að koma mér að stað aftur en nú er þetta allt komið á fullt og ég búin að missa 1,2 kg síðan og er heildarniðurstaðan sú að 9,1 kg eru farin. Það líður ekki að löngu að ég nái 10 kg og þá fæ ég verðlaun hjá Danska og það verður klappað fyrir mér veiii hehe. En hún Andrean mín er búin að skrá sig og gengu bara ágætlega, en hún er í smá pásu frá þessu í augnablikinu að sökum stess og fleira, en þið fáið fréttir af henni þegar hún er komin á fullt. Eins er hún Gurrý mamma hennar Andreu að spá í að koma og hlakkar mig bara til, það er svo gott þegar margir eru saman, gott að fá stuðning og svona. Nú er vigtun á þriðjudaginn og skal ég henda inn nýjustu tölum eins fljótt og hægt er.

Annars voru jólin og hátíðirnar voða cozy og ljúf. Þetta voru fyrstu jólin okkar Árna saman hérn á litla heimilinu okkar og náðum við að gera þetta voða jóló og fínt, enn er nú smá vottur af jólunum að sökum þess að ég fæ mig ekki til að taka seríuna úr glugganum, þetta er svo næs hehe.

Þangað til næst, adios

25. janúar 2008 klukkan 12:26
Ólöf Lára Ágústsdóttir
2 athugasemdir
18desember

Den danske vægtkonsulterne

Jahá þá er það komið á hreint, ég er búin að missa 9,5 kg á fimm vikum og það í desember og í prófum íha, geri aðrir betur!!!! Ég kannski næ markmiðinu mínu sem er 10 kg fyrir jól, en svo bætir maður nú kannski einhverju á sig aftur, you never knowGlottandi

18. desember 2007 klukkan 14:10
Ólöf Lára Ágústsdóttir
6 athugasemdir
18desember

Próf, próf og aftur próf

Jæja nú er þetta að verða búið, nú á ég bara eitt próf eftir af fjórumHlæjandi. Mín er að fara í seinasta próf á fimmtudaginn sem mun verða afbrotafræði jei hei. Eftir það ætla ég að fara að gera bara það sem mig langar til að gera, kannski sjoppa smá og sofaUllandi, míns er pínu þreyttur!!! En ég ætla bara að vera að gera ekki neitt um jólin nema hafa það gott, yfirleitt myndi ég nú segja að ég ætlaði mér að borða fullt af góðum mat, nammi og kökum en ekki þessi jólin, þar sem við Árni erum á danska þá ætlum við ekki að tapa okkur í gleðinn en auðvitað eitthvað. Fyrst við erum að tala um danska þá er vigtun á eftir, en í seinustu viku voru 8,1 kg farin á fjórum vikum og sjáum nú hvort eitthvað sé farið á eftirSkömmustulegurvonandi, því tekið var smá svindl á föstudaginn úbbs hehe. En það er nú ekki svo slæmt á einum mánuði. En jæja skelli svo inn færslu á eftir um nýjustu upplýsingarBrosandi

18. desember 2007 klukkan 08:53
Ólöf Lára Ágústsdóttir
Engin athugasemd
05desember

Aðventukrans

Jæja þá er maður búin að fara í vigtun í þriðja sinn og viti menn, mín missti heil 2.1 kg og samtals eru þá farin 6.9 kg og það á þremur vikum. Ekki slæmt það, þið eigið ekki eftir að þekkja mig eftir nokkrar vikur heheUllandi. En nú nálgast jólin óðum og alls staðar eru kræsingar og freistingar en ég finn nú ekki mikið fyrir því, kellurnar á fundunum hjá danska finnast þetta alveg hrikalega erfitt, og ég svona lukkuleg að finna ekki neitt. En þar sem líður að jólum þá líður nú hraðar að prófum og við skutlurnar í skólanum byrjaðar á fullu í lestri.

Helgin hjá mér var nú bara hin ágætasta. Byrjaði á föstudaginn á heimaprófi sem var drulluerfitt, og kláraði það á litlum 8 klt. og fór svo að dunda mér og lét mér líða eins og ég væri ekki í skóla. Á laugardeginum vöknuðum við Árni eldsnemma og fórum út að versla jólagjafir og jólaskraut, þá fékk ég símhringingu frá Sifinni sætu og spurði hún mig hvort ég hefði einvhern tímann gert aðventukrans haha, nei það hef ég nú aldrei gert og tókum við þá ákvörðun að gera svoleiðis um kvöldið. Við skelltum okkur í garðheima og versluðum allt sem þarf í svona krans og kostaði það margar kúlur!!! Gráðugur. Svo þegar heim var komið byrjaði ballið, ég verð nú að segja að mér gekk nú bara frekar vel en þar sem Sibban hefur ekki mikla þolinmæði fyrir svona föndurdóti þá gekk henni ekki vel og fór heim með hálfkláraðan krans sem hún og Stebbinn hennar kláruðu svo saman á sunnudagskvöldinu. Svo fór helgin bara í dúllerí og allt orðið svona fínt og jóló hjá okkurHlæjandi. Ég er ekki frá þvi að ég sé bara komin í jólafílinginn, burt séð frá prófum og stressi því tengt.

Þangað til næst

Adios

05. desember 2007 klukkan 00:40
Ólöf Lára Ágústsdóttir
2 athugasemdir
27nóvember

Ný tala

Jæja þá maður búinn að láta vigta sig og jújú orðin kílóinu léttariUllandiVar nú að vonast til að þetta færi eins og í seinustu viku hehe nei nei þetta er fínt. En núna eru samtals 4,8 kg farin og ég því nær markmiðinuSvalur.

Svo er bara ekkert spennandi framundan nema prófalestur, er búin með ritgerðirnar og það sem ég núna spenntust fyrir er að fara að klára að versla inn jólagjafir á laugardaginn og skreyta. Ótrúlegt hvað maður metur ýmsa hluti öðruvísi þegar maður er í prófum hehe, að hlakka til að klára jólainnkaupin hehe, en þetta verður ágætis tilbreyting frá náminu.

Jæja bless í bili

27. nóvember 2007 klukkan 20:44
Ólöf Lára Ágústsdóttir
4 athugasemdir
20nóvember

Geri aðrir betur!!!

Ég skellti mér í vigtun og á fund í dag og vá ég er ekki alveg að trúa þessu en það fóru 3,8 kg á einni vikuUllandiSvalurHlæjandiGlottandi. Ég er bara að spá í að birta alltaf nýjustu tölur hérna vikulega, yes very næs....

Þangað til næst, c-ya

20. nóvember 2007 klukkan 16:45
Ólöf Lára Ágústsdóttir
Engin athugasemd
20nóvember

Danski djöfullinn

Jæja gott fólk, er ekki komin tími á nýtt blogg???

En lítið er nú að frétta fyrir utan ágætis álag í skólanum, það er nefnilega sá tími ársins sem að allir kennarar taka sig saman og láta skila inn ritgerðum. Held það sé nú búin að vera nóg umræða um þetta í gegnum árin og tilgangslaust að fara að ræða þetta enn og aftur. Þetta breytist aldreiGráta.

En við Árni, Helga Fríður, Eva Mýsla, Lalli og fleiri skelltum okkur á DJ Tiesto á Brodway um daginn og mikið var það nú gaman. Við fórum í partý til Evu áður og mætti ekki Lallinn með gítarinn og tók þar nokkra góða slagara eins og gústa guðsmann og pamelu í Dallas svo fátt eitt sé nefnt, þetta var hin mesta snilld. En svo var haldið á Tiesto og hittum við þar fullt af skemmtilegu fólki eins og Guðrúnu Freyju og Jón Eric, Rönnslu og Eylúnu. Stórum part af kvöldinu eyddi ég með Guddu út í smók hehe held við höfum reykt pakka saman hehe. Árni orðin alveg snar vitlaus á hliðarlínunni sem reddaðist nú um leið og hann sá Ólöf sín hehe. ÉG ER ÆÐI, ÉG VEIT!!!.

Daginn eftir skelltum við Mýsla okkur upp á Skaga, að hitta Siggu Dísu, Óla og nýja fjölskyldumeðliminn hana Ólöfu litlu. Hún er svo mikil snúlla, rosalega blönduð. Um kvöldið fór Árni svo á lokahófið í fótboltanum og ég fór að passa fyrir þóru frænku. Svo fór ég að sækja Árna þegar ég var búin að passa og Jesús minn einni, hann var svo á píkunni að það hálfa væri nóg. Hann náttla gat ekki talað eða ég þurfti allavega að biðja hann að endurtaka sig fjórum sinnum. svo hennti hann símanum sínum á gólfið af því að símminn var ekki kveikjari og fussaði og sveiaði yfir því haha. Svo þegar heim var komið hélt hann áfram að bulla og reyna að segja mér eitthvað frá kvöldinu og þið sem að þekkið mig vitið alveg hvenig skapið í mér var orðið hehe. En jæja ég reyndi að henda honum inn í rúm og hann þurfti náttla að pissa fyrst, held hann hafi verið í góðar 10 mínutur að reyna að koma einhverju út úr ræk... nei nússanum sínum, svo heyri ég þennan svakalega skell og ég stekk upp og spyr hvern anskotann gangi á eins og reið móðir við barn sem eitthvað hefur gert af sér!!! hahaaha þá sat hann á skálinni eins og auli og leit upp haha og sagði svona aumingjalega "ég var bara að setjast á klósettið" ok ok ég fór bara aftur upp í sófa og fór að horfa á tv og henti honum í rúmið, og lyktin af honum var þannig að ég svaf í sófanum. Jæja þegar ég svo ætlaði á klósettið sá ég að það var brotið, hann brauð setuna og lokið hvernig er það hægt??? Nei maður spyr sig. Þannig að hann er kominn í pásu núnaUllandi.

En að allt öðru efni, þá erum við Árni komin í Danska kúrinn og gengur svona rosa vel. Ég er að fara í fyrstu vigtun núna á eftir og hlakkar bara til og er í leiðinn i soldið stressuðHlæjandi. En ég mun láta vita tölur eftir þetta og kannski ég geri það bara vikulega. Ef ég er sátt það er að segja haha.

En nú er komið út úr seinni ritgerðinni í stjórnmálafræðinni og já ég skil þetta ekki núna fékk ég 7,5 og ógeðslega erfitt efni, ég er greinilega svona klár heheSvalur. Ég er allavega mjög ánægð, stolt af sjálfri mér hehe.

En þangað til næst,

verið hress, ekkert stress, bless bless

20. nóvember 2007 klukkan 11:27
Ólöf Lára Ágústsdóttir
Engin athugasemd
25október

Syndir feðranna

Við Árni skruppum í bíó í gær á Syndir feðranna, fyrir ykkur sem ekki vitið hvaða mynd það er þá er það heimildamyndin um Breiðarvíkur málið. Ég verð bara að segja að þetta er sláandi mynd, greyið mennirnir sem þurftu að ganga í gegnum þennan viðbjóð. það er ekki oft sem maður sér fullorðna menn gráta, en í það kemur nokkrum sinnum fyrir í þessari mynd. Það getur enginn sagt mér það, að þessir menn hafi komið saman og búið til þessa sögu það sést greinilega. Þessir litlu strákar sem sendir voru upp í sveit af barnaverndarvöldum vegna þess að þeir kannski stálu 100 kr, þá voru þeir teknir af foreldrum sínum og sumum sagt að þeir væru á leið í sveit og þar væri lítið tívolí. Þarna í sveitinni voru þeir lamdir, lagði í einelti og nauðgað af forstöðumanni, öðrum starfsmönnum og öðrum eldri strákum á heimilinu; þeir fengu lítið og stundum ekkert að borða, næstum því drekktir í baði af forstöðumanni. Einn af þessum mönnum sagði frá atviki þegar hann var held ég um 8 - 10 ára þá var hann rosalega myrkfælinn og gat ekki sofnað á kvöldin þannig að hann annað hvort fór til bróður síns eða Lalla Jons en forstöðumaðurinn kom að honum og henti honum inn til sín og ef hann ekki myndi vera þar myndi hann setja hann í ennþá meira myrkur. Seinna kom forstöðumaðurinn inn i herbergið til hans og litli drengurinn hélt að bróðir hans væri að koma til hans en nei svo var ekki, f.maðurinn lagðist ofan á hann og nauðgaði honum, fór síðan út og litli strákurinn gat lítið annað gert en að fela sig inní skáp og daginn eftir þegar hann kom út úr skápnum sá hann allt blóðið, það var blóð út um allt á lærunum og í lakinu.

Hugsið ykkur að vera svona myrkfælinn og svo kemur einhver og gerir ykkur eitthvað svona slæmt í myrkrinu.

Annað sem einn sagði var að sumir menn deyja aðrir drepast, forstöðumaðurinn drapst!!!

Mér finnst að ríkið ætti ekki að reyna að koma í veg fyrir þetta og reyna með öllu valdi að koma til móts við þessa menn, hvað varðar menntun og sálfræðihjálp. Þeir hafa misst rosalega mikið í lífinu og um 75% af þeim drengjum sem dvöldu þarna leiddust út í afbrot eftir dvölina þar.

Það er fjórðungur drengjanna sem dvöldu í Breiðavík látnir og flestir búnir að fremja sjálfsmorð, einn meira að segja framdi sjálfsmorð við gerð myndarinnar. Þessir menn muna aldrei ná sér en hægt er að veit þeim þá hjálp að þeir geti lært betur að lifa með þessu.

Ég varð bara að koma þessu frá mér, en já ég var að fá út úr stjórnmálafræðiritgerð sem ég hélt að væri ein mín lélegustu skrif en viti menn ég fékk 8,5 og ekkert smá sæl með lífiðSvalur. Og komin með smá svona egó búst til að skrifa næstu hehe.

hasta luego

Senjorítia Ólöf

25. október 2007 klukkan 14:46
Ólöf Lára Ágústsdóttir
3 athugasemdir
03október

Smá klám í tilefni dagsins

Ég var alveg búin að gleyma að ég ætlaði að setja þetta hérna innUllandi.

Ég og Árni kíktum inn á svona spjall síðu á www.adamogeva.is og vorum þar að tala við eitthvað fólk, einn gaurinn sem við töluðum við bað okkur að koma á msn og við gerðum það. Svo spyr hann hvort við séum með web cam sem við eigum ekki þannig að hann segir að ef hann fær mynd af kvennmanninum þá færi hann á web camið og gerði allt sem við vildum. Það tók okkur ekki langan tíma að fara inná einhverjar klám síður og í amateur porn og fundum þar einhverja allsbera stelpu og sendum honum hehe, hann sendir til baka og segir: þú ert helvíti flott haha ég þakkaði pentGaurinnSaklaus. Og svo byrjaði ballið. Gaurinn kveikir á caminu og spyr hvað viljiði að ég geri? (já b.t.w. hann mætti á spellanum í beina). Og samtalið fer svona:

Ólöf: Rúnkaðu þér (voðalega pen) Og það gerði hann

Gaurinn: Og hvað svo, er eitthvað fleira sem ég á að gera?

Ólöf: Áttu eitthvað dót? (Fullorðinsleikföng, fyrir ykkur sem ekki fattið)

Gaurinn: Já ég á eitthvað, hvað viljiði?

Ólöf: Áttu dildó éða kúlur?

Gaurinn: Já hvort viljiði?

Ólöf: Ég vil sjá dildóinn í rassinn!

Gaurinn: Hvort viljiði venjulegan eða gler?

Ólöf: Ég væri til í að sjá gleriðUllandi

Gaurinn mætir á svæðið með þennan rosalega gler dildó, hef ekki séð svona áður!!!

Gaurinn: Hvað á ég að gera við hann?

Ólöf: Settu hann inn í rassinn!

Gaurinn byrjar að troða honum upp í rassinn á sér og hefur gaman af því og spyr alltaf hvað svo og hvað svo? Við hérna alveg í kasti og höfðum ekki hugmynd hvað við ættum að biðja hann um en svo segi ég við hann:

Ólöf: Geturu snúið þér við þannig að rassinn á þér sé alvag beint á camið? og sett dildóinn inn?

Gaurinn: já, viltu að ég sé í sófanum, á stól eða á gólfinu?

Ólöf: Á gólfinu

Gaurinn setur dildóinn á gólfið, þannig að hann stendur lóðréttur, hahaha sest svo niður á hann og byrjar að hjúpa kvikindið bwahahaha geggjað gaman hjá honum. Við áttum bágt með okkur. Svo heldur hann áfram að spyrja og þarf svo að hætta snögglega og þar með var þessari skemmtun lokið. En bíðið við, það kom annar fertugur maður að spjalla við okkur og ég spurði hann hvort hann væri giftur og jú jú hann var það og konan hans var bara í vinnunni. Hann var alltaf að spurja hvort ég vildi sönnun fyrir því að hann væri giftur og segi: (Þessi bað líka um mynd af "mér"og fékk sömu mynd og hinn)

Ólöf: ha hverngi þá, hvernig ætlaru að sanna að þú sért giftur

The forty year old: Nú ég gæti stolist í skúffuna hennar?

Ólöf: Já gerðu það, sæktu dildó eða eitthvað skemmtilegtUllandi

The forty year old: nei ég var nú ekki að meina það, ég gæti kannski laumast í nærbuxna skúffuna hennar?

Ólöf: Já já gerðu það bara, sæktu bleikar, ef hún á það ekki þá hvítar

The forty year old: Hvernig viltu svo að ég mæti á camið? allsber eða í fötum og stippa?

Ólöf: Ég vil stripp, það klikkar aldreiGlottandi

Hahahah hann mætir svo í útsendingu og það sést bara mynd af gallabuxnum hjá slöngunni. og ég segi honum að byrja að stryppa!!! hahaha haldiði að hann byrji ekki að stryppa og og hvað haldiði? hann var í hvítum g-strengs nærbuxum af konunni. Ég hélt ég yrði ekki eldri haha og svo lét ég hann rúnka sér og svona en þetta samtal/sýning stóð nú ekki yfir lengi.

En pæliði í þessu, ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég kæmi að Árna í nærbuxum af mér á web caminu haha myndi ég hlæja eða grenja? Held ég myndi senda hann með hraðpósti út!!!!! Hvað mynduð þið gera???

kv, Klámhundurinn égUllandi

03. október 2007 klukkan 22:50
Ólöf Lára Ágústsdóttir
5 athugasemdir
28september

Loksins!!!

Jæja losksins eru Þjóðátíðarmyndirnar komnar, Kíkið á þettaHlæjandi

28. september 2007 klukkan 13:11
Ólöf Lára Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Ólöf Lára Ágústsdóttir
  • Netfang: olofagustsdottir@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Háskólagella
  • Hjúskaparstaða: Getting married

Auglýsing

What's next

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Pælingar!!!

Hvernig getur maður kveikt og slökkt á fattaranum???

Klukkan

Leit